Ökuskóli 2 er í fjarnámi hjá Netökuskólanum.
Æskilegt er að bók- og verklega ökunámið sé samþætt þannig að það gefi sem bestan árangur. Við mælum með því að þú verðir í sambandi við verklega ökukennarann þinn til að fá leiðbeiningar um það.
Ef einhverjar spurningar vakna bendum við á að skoða yfirlit yfir námsferilinn fyrir B-réttindi.. Ef þú finnur ekki svör við spurningum þínum þar, þá getur þú sent fyrirspurn á netokuskolinn@netokuskolinn.is
Ef þú ert búinn með Ökuskóla 1 getur þú skráð þig í Ökuskóla 2. Það er gert á sama hátt og þegar þú skráðir þig í Ökuskóla 1. Hér getur þú skráð þig í Ökuskóla 2.