Önnur Námskeið

Netökuskólinn býður upp á fyrirlestra um Vistakstur á netinu. Fyrirlestrarnir eru fjórir og eru samtals um 45 mínútur, auk spurninga úr efninu.

Á námskeiðinu er leitast við að svara spurningunum: Hvað er vistakstur? Fyrir hvern er vistakstur?

Farið er yfir þessar spurningar og ýmislegt fleira sem tengist vistakstri. Má þar nefna hvernig við keyrum vistakstur, mengun af umferð og hver er ávinningurinn. Mikilvægi vistaksturs á tímum hnattrænnar hlýnunar er flestum ljós. Það eru samt ekki allir til í að breyta aksturslagi sínu fyrr en þeir gera sér ljóst hver ávinningurinn er, bæði fyrir veskið og umhverfið og að ekki sé talað um umferðaröryggið.

Hægt er að skrá sig á námskeiðið hér: Skráning á vistakstursnámskeið

 


Þessi síða notar vefkökur.
Sjá nánar